Ríkisstjórnin hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við Landsvirkjun, RARIK, Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða, um að ganga til viðræna um kaup ríkissjóðs á hlutum félaganna í Landsneti. Umrædd orkufyrirtæki eru eigendur alls hlutafjár í Landsneti.

Þessi breyting á eignarhaldi Landsnets hafi verið til skoðunar um langt skeið, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þá sé hún í samræmi við nýsamþykkta orkustefnu fyrir Ísland, „Sjálfbær orkuframtíð, Orkustefna til ársins 2050“ sem kynnt var í byrjun október síðastliðnum. Í henni segir að mikilvægt sé að ljúka eigendaaðskilnaði flutningsfyrirtækisins þannig að því verði komið alfarið í beina opinbera eigu. „Hlutlaust eignarhald er grundvöllur gegnsæis og jafnræðis á raforkumarkaði,“ segir í lok tilkynningarinnar.

Sjá einnig: Landsnet hagnast um 3,5 milljarða

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra,  skrifuðu undir viljayfirlýsinguna fyrir hönd ríkissjóðs. Markmiðið sé að ná samningi um kaup og sölu hlutafjár í Landsneti á árinu 2021.