Ríkiseignir og Framkvæmdasýsla ríkisins, FSR, munu sameinast undir heitinu Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir þann 15. september. Þetta kemur fram í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

„Með sameiningunni fæst mikil samlegð þar sem húsnæðis- og aðstöðumál ríkisins verða á einni hendi, hvort sem um er að ræða framkvæmda- eða leiguverkefni,“ segir í tilkynningunni. „Mun sameiningin skila bættri áætlanagerð og stýringu eignasafnsins, sem ætlað er að leiða til aukinnar skilvirkni, betri þjónustu og þar með fjárhagslegs ávinnings.“

Ákvörðunin byggir á niðurstöðum vinnu ráðuneytisins og stofnananna tveggja sem staðið hefur yfir frá síðasta hausti. Á næstunni verður unnið að samþættingu stofnananna hvað varðar mótun nýs skipulags og stefnumótunar.

Fasteignasafn stofnunarinnar er sagt hið stærsta á landinu en það telur um 530 þúsund fermetra húsnæðis í um 380 fasteignum víðsvegar um landið.

Fasteignirnar sem falla undir sameinaða stofnun hýsa meðal annars framhaldsskóla, heilbrigðisstofnanir, söfn, lögreglustöðvar og hefðbundið skrifstofuhúsnæði. Jafnframt munu um 300 jarðir í ríkiseigu heyra undir stofnunina. Þá mun stofnunin gegna hlutverki miðlægs leigutaka húsnæðis fyrir hönd ríkisins.

Fram kemur að þær eignir sem heyra ekki undir stofnunina séu fasteignir Háskóla Íslands og Landspítala. Fyrr á árinu var stofnað félag um rekstur fasteigna HÍ, sem stýrir um 100 þúsund fermetrum, og fyrir liggja áform um miðlægan rekstur fasteignasafns Landspítalans sem telur um 160 þúsund fermetra.