Friðrika Benónýsdóttir, menningarritstjóri Fréttablaðsins hefur sagt upp starfi sínu. Fram kemur í færslu á Facebook-síðu hennar í dag að tengingunum hafi verið kastað.

Friðrika segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda.

Friðrika bætist í hóp þeirra sem hætt hafa hjá 365 síðustu daga. Þar á meðal eru Mikael Torfason, sem sagt var upp í vikubyrjun og Ólafur Þ. Stephensen, sem sagði upp sem ritstjóri Fréttablaðsins í vikunni. Þá er stutt síðan tilkynnt var um starfslok Ara Edwald, forstjóra 365, og sjónvarpsstjórans Freys Einarssonar.