Síðastliðið laugardagskvöld voru opnuð til í Laxá í Leirársveit. Áin er boðin út þriggja ára, en tilboð bárust frá fjórum aðilum. Hæsta tilboðið átti Stangaveiðifélag Reykjavíkur, eða 124,6 milljónir. Stangaveiðifélagið Lax-á bauð 120,6 milljónir, Sporðablik 112,8 milljónir og Eljan ehf. 99 milljónir.

Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá því að jafnframt hafi borist tvö frávikstilboð frá Sporðabliki. Tilboðin gilda frá næsta veiðiári, en nú er farið yfir tilboðin. Veiði í Laxá í Leirársveit hefst 22.júní