Viðskipti dagsins í Kauphöllinni voru heldur róleg og litlar sveiflur voru á hlutabréfamarkaði. Gengi bréfa Haga hækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 1,33%. Þá hækkuðu hlutabréf Marel um 0,82%, HB Granda um 0,67%, VÍS um 0,6%, Regins um 0,35%, N1 um 0,26% og Sjóvár um 0,08%.

Þá lækkaði gengi hlutabréfa Vodafone um 0,79%, Icelandair um 0,38% og Eimskips um 0,22%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,72% og stendur nú í 1.202 stigum. Heildarvelta í viðskiptum dagsins nam 561 milljón króna.