Hlutabréf danska brugghússins Royal Unibrew hafa fallið um sem nemur 12% það sem af er degi í dönsku kauphöllinni. FL Group [ FL ] á sem kunnugt er 25% hlut í félaginu. Lækkunina núna má rekja til uppgjörs félagsins sem birt var í morgun og sýndi 30% verri afkomu en vænst var.

Bréf félagsins hafa lækkað talsvert undanfarið eða um 30% síðan í lok júní í sumar.