Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í nóvembermánuði þar sem sagt var upp 118 manns.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar en um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og framleiðsluiðnaði og er ástæðan m.a. endurskipulagning vegna verkefnaskorts og rekstrarerfiðleikar.

Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu janúar til mars 2010 en alls hefur 1.606 manns verið sagt upp með hópuppsögnum það sem af er árinu 2009, að stærstum hluta í mannvirkjagerð (46%) og fjármálastarfsemi (19%).

Fram kemur að þær hópuppsagnir sem tilkynntar hafa verið á árinu 2009 hafa flestar komið til framkvæmda nú þegar, flestir sem hópuppsagnirnar náðu til misstu vinnuna í ágúst eða um 370 manns.

Nálægt 180 manns misstu vinnuna í október, um 150 manns misstu vinnuna í nóvember, um 50 er áætlað að munu missa vinnuna í desember, um 113 manns í janúar 2010, um 39 í febrúar 2010 og um 26 manns í mars.