Á stjórnarfundi RÚV ohf. í gær var samþykkt að hætta birtingum auglýsinga í kringum barnaefni í Sjónvarpinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV en samþykkt var að engar auglýsingar megi birta í tengslum við barnaefni sem sýnt er þegar líklegt er að börn horfi ein á sjónvarp fyrir kl. 18.00 á daginn.

„Hér er um tímamótaákvörðun að ræða þar sem auglýsingar hafa verið sýndar við barnaefni allt frá því að Sjónvarpið hóf göngu sína árið 1966,“ segir í tilkynningunni.

„Með þessu vill RÚV ganga fram með góðu fordæmi í því að sporna við markaðsvæðingu sem snýr að börnum.“