Norðlenska flugfélagið Niceair var með 69% sætanýtingu á fyrsta starfsmánuði sínum í júní, en sætanýting það sem af er júlí er 86%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Niceair flýgur áætlunarflug frá Akureyri til Kaupmannahafnar og Tenerife, auk þess sem leiguflug hafa verið áberandi í starfseminni það sem af er sumri. Einnig stóð til að vera með áætlunarflug til London en í síðasta mánuði flugfélagið aflýsti öllum flugum til London vegna vandamál sem snúa að fugrekstrarleyfi Hifly, sem leigir út Niceair vélar. Flug Niceair til London verða ekki bókanleg fyrr en varanleg lausn kemst í málið.

Sjá einnig: Ekki í samkeppni við Play og Icelandair

„Við erum þakklát og hrærð yfir góðum viðtökum og þéttum stuðningi almennings og fyrirtækja á Norður- og Austurlandi. Þetta verkefni hefur verið rannsakað mjög vel og þessar tölur eru umfram það sem við bjuggumst við í fyrstu skrefunum. Bókanir inn í veturinn eru jafnframt góðar og ekki annað að sjá en að stuðningur og ferðavilji íbúa svæðisins sé að raungerast,” segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair.

„Félagið bætti nýverið við aukaferðum og lengdi ferðatímabilið til Tenerife fram til mars. Næsti vetur verður síðan mælikvarði á erlendu markaðina okkar, en á komandi vikum mun ný vetraráætlun með fleiri áfangastöðum líta dagsins ljós. Við hlökkum mikið til.”