Stjórnir Saga Capital Fjárfestingarbanka og VBS Fjárfestingarbanka hafa ákveðið að fresta formlegum viðræðum sínum um sameiningu bankanna tveggja.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum en þar segir að þetta sé gert í ljósi þess mikla óvissuástands sem nú ríkir á mörkuðum.