Sala á áfengi og tóbaki jókst fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabili í fyrra. Þannig jókst sala á áfengi um 0,3% í magni en sala á tóbaki jókst um rúm 19% á sama tímabili.

Á vef Vínbúðarinnar kemur fram að sala rauðvíns dróst saman um 1,4%, sala hvítvíns jókst um 6,4%, en sala á brandí dróst saman um 21,5%.

Þá dróst sala á ókrydduðu brennivíni og vodka saman um rúm 7% og aðrar bjórtegundir en lagerbjór og öl um rúm 35%. Svipaður samdráttur er í blönduðum drykkjum eða 36,6%.

Fram kemur að lagerbjór. sem er tæp 79% af allri magnsölu Vínbúðanna, seldist í rúmlega 10,7 milljónum lítra fyrstu 8 mánuði ársins og jókst salan um 1,8% frá því á sama tíma í fyrra.

Fleiri vefja sér sjálfir og taka í nefið

Velta í sölu á tóbaks fyrstu 8 mánuði jókst um rúm 19%, fór úr 5,6 milljörðum í 6,6 milljarða.

Sala vindlinga, sem eru tæplega 92% af veltu tóbaks, minnkaði hins vegar í magni á tímabilinu um tæp 6%.  Sala vindla minnkaði í magni um 2%, á meðan sala í reyktóbaki og neftóbaki jókst um 33% og 19% á tímabilinu.