Sala áfengis í janúar dróst saman um 9% í lítrum miðað við sama mánuð árið 2009.  Sala bjórs dróst saman um 8,5% og sala rauðvíns um tæplega 8%.

Frá þessu er greint á vef Vínbúðarinnar en þar er tekið fram að þar sem langflestir viðskiptavinir koma í Vínbúðirnar á föstudögum verður að hafa í huga að í janúar 2010 eru fjórir föstudagar en í janúar 2009 voru fimm föstudagar.

Sjá nánar á vef Vínbúðarinnar.