Sala í desember var 2,6% minni en sama mánuð í fyrra. Sala á rauðvíni og hvítvíni dróst lítilega saman en athygli vekur að sala á freyðivíni var tæpum 10% minni í ár en í fyrra. Ef litið er á söluna vikuna fyrir áramót sem er einn annasamasti tími ársins þ.e. dagana 27. – 31. desember voru seldir 503 þús. lítrar af áfengi í ár sem er 7% minna en sömu daga í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Vínbúðarinnar.

Á árinu 2011 voru seldir 18,4 milljón lítrar af áfengi sem er 2,7% minna en árið 2010. Á heildina litið er aukning í sölu á léttvíni en samdráttur í bjór og sterku áfengi. Alls komu 4.181 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar á árinu 2011 í samanburði við 4.256 þúsund árið áður.