Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins ef marka má könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Fylgið við flokkinn er 33,4% samkvæmt könnuninni.

Fylgi við VG er 28,2%, fylgi við Sjálfstæðisflokkinn er 25% og fylgi við Framsóknarflokkinn 10%.

Ef þetta yrðu niðurstöður kosninganna fengi Samfylkingin 22 þingmenn, VG 19 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur 16 og Framsóknarflokkur  6.

Hringt var í 800 einstaklinga og tóku 77% afstöðu, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.