Samherji hf. hefur í dag, samið um sölu á 49,66% hlut sínum í Hraðfrystistöð Þórshafnar. Kaupendur eru Fræ ehf., fyrirtæki í eigu Þórshafnarhrepps með 34% hlut að nafnvirði kr. 167.571.418.- og Svalbarðshreppur hins vegar með 15,46% hlut að nafnvirði 75.753.907.- Efni samninganna er að öðru leyti trúnaðarmál samningsaðila. Áætlaður hagnaður Samherja hf. af viðskiptunum nemur ríflega 300 millj. kr.

Formaður stjórnar Fræs er Björn Ingimarsson, sveitastjóri.