Bláa Lónið hf. hefur samið við ATAFL, áður Keflavíkurverktaka, um stækkun Heilsulindarinnar Bláa Lónsins.

Byggt verður við Heilsulindina á þrjá vegu, til austurs verða búningsklefar stækkaðir, til vesturs verður verslunin stækkuð ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk og til suðurs verður byggður nýr veitingasalur og eldhús.