Atkvæðagreiðslu um samning Starfsgreinasambandsins (SGS) við Launanefnd sveitarfélaga, sem skrifað var undir 29. nóvember sl., lauk rétt í þessu.

Niðurstaðan er sú að samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta greiddra atkvæða eða 96,4%.

Alls voru 1.661 einstaklingar á kjörskrá. Atkvæði greiddu 753 eða 45,3%.  Já sögðu 726. Auðir og ógildir seðlar voru 2.

Þetta kemur fram á vef SGS.

Aðilar að samningnum eru eftirtalin aðildarfélög SGS: Stéttarfélag Vesturlands, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðsfélag Hrútfirðinga, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining –Iðja, Báran stéttarfélag, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágr., Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis og Verkalýðsfélag Grindavíkur.