Vegvísir Landsbankans greindi frá því í dag að finnska tryggingafélagið Sampo hafi eignast rúmlega 5% hlut í danska tryggingarfélaginu Topdanmark, en það er næststærsta tryggingarfélag í Danmörku.

Exista á um 20% eignarhlut í Sampo, en sögusagnir hafa verið uppi um að Sampo kunni jafn vel að reyna að taka yfir Topdanmark.

Hlutabréf í Topdanmark hækkuðu um 15,1% í dag.