Um helmingur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ þegar gerð var tilraun til að kanna verð á dekkjaskiptum nú í byrjun apríl.

Á heimasíðu ASÍ segir að vísbendingar séu um að samráð hafi verið milli aðila um að vísa fulltrúum verðlagseftirlitsins frá og neita þannig að upplýsa neytendur um verð á þjónustu sinni.

Dæmi hafi einnig verið um að þjónustuaðilar vísuðu verðtökufólki á annan stað, svo sem á skrifstofu viðkomandi fyrirtækis, til þess að fá uppgefið verð. Telur sambandið að slíkt samræmist ekki þeim sjálfsagða rétti neytenda að fá skýrar og skilmerkilegar upplýsingar um verð vöru og þjónustu á sölustað og gangi alfarið gegn verklagsreglum verðlagseftirlitsins um framkvæmd verðkannana.

Reynslan af verðkönnunum hjá dekkjaverkstæðum á undanförunum árum sýnir að það er að jafnaði mikill verðmunur á milli þjónustuaðila. Á heimasíður ASÍ segir jafnframt að það að fyrirtæki velji að neita fulltrúum neytenda um að safna og birta þessar upplýsingar valdi verulegum vonbrigðum og veki eðlilega upp spurningar um hvað slík fyrirtæki hafi að fela. Þá hafi vakið athygli að á nokkrum hjólbarðaverkstæðum hafi borið á hreinum og klárum dónaskap í garð verðtökufólks.

Eftirtaldir þjónustuaðilar neituðu fulltrúum verðlagseftirlitsins um aðgang að verði á þjónustu sinni: Betra grip, N1, Dekkjahöllin, Gúmmívinnustofan, Bílkó, Dekkjahúsið, Bifreiðaverkstæði SB, Klettur, Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Barðinn, Sólning, Nesdekk Grjóthálsi, KvikkFix og Hjólbarðaverkstæði Kaldasels.