Með ákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið ógilt samruna sem falist hefði í kaupum Valitors hf. (eigenda Visa á Íslandi) á öllu hlutafé í Euro Refund Group North á Íslandi ehf. (Tax Free).

Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins en þessi kaup voru tilkynnt eftirlitinu á síðasta ári.

Valitor starfar við útgáfu greiðslukorta og færsluhirðingu en meginstarfsemi Tax Free er á sviði endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna.

Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu að markaðir þeir sem fyrirtækin starfa á séu nátengdir. Fram kemur á vef stofnunarinnar að um sé að ræða samsteypusamruna fyrirtækja þar sem skapast geti mikill möguleiki, geta og hvati til útilokunar keppinauta á mörkuðum fyrir greiðslukortastarfsemi, posaleigu, endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna og svokölluðum gjaldeyrisumsnúningi.

Í því síðastnefnda felst þjónusta við erlenda ferðamenn um uppgjör viðskipta með kreditkortum í erlendum gjaldmiðli.

„Sýnt er fram á að staða annarra aðila á viðkomandi mörkuðum geti veikst og að samruninn geti leitt til þess að keppinautar hrekist af markaði og innkoma nýrra aðila verði torvelduð,“ stendur á vef stofnunarinnar.

„Með því myndi valkostum söluaðila á skilgreindum mörkuðum fækka, til tjóns fyrir neytendur. Samruninn er því talinn fela í sér alvarlegar samkeppnishömlur. Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins í þessu máli að ekki séu forsendur til þess að samþykkja samrunann með þeim skilyrðum sem samrunaaðilar lögðu til.“

Þannig kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að samruninn sé því ógiltur á grundvelli samkeppnislaga.

Sjá nánar vef Samkeppniseftirlitsins.