Samskip hefur ákveðið að leggja niður starfsemi í Helsingborg að því er kemur fram í fréttum sænska sjónvarpsins. Þetta kemur bæjar- og hafnaryfirvöldum þar í opna skjöldu enda lagt milljónir í uppbyggingu hafnarinnar, sem talið var uppbygging til framtíðar og unnið í fullu samráði við Samskip að því er kom fram í sænska sjónvarpinu.