Tap Samson á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2007 nam 3,2 milljörðum króna samanborið við 12,2 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Félagið er eigandi tveggja dótturfélaga og er því birtur samstæðureikningur félagsins og dótturfélaga þess. Auk móðurfélagsins eru í samstæðunni félögin Samson Properties ehf. sem er fasteignafélag sem sérhæfir sig í rekstri, þróun og fjárfestingum í fasteignum og fasteignatengdum verkefnum í Evrópu. Einnig er fjárfestingafélagið Ópera fjárfestingar ehf. hluti af samstæðunni en það félag er eigandi að um 26% eignarhluta í Fjárfestingarfélaginu Gretti hf.

Eignarhluti móðurfélagsins í Landsbanka Íslands hf. var 4,6 milljarðar króna að nafnverði í lok tímabilsins og nam hann 41,37% af heildarhlutafé bankans. Markaðsverð eignarhlutans nam 173,7 milljarðar króna í lok tímabilsins en bókfært virði hans er 73 milljarðar króna en beitt er hlutdeildaraðferð við bókun eignarhlutans. Gengi hlutafjár í Landsbanka Íslands hf. hækkaði um 43,8% á fyrri hluta ársins 2007.

Þar sem beitt er hlutdeildaraðferð við að gera grein fyrir eignarhluta félagsins í Landsbanka Íslands hf. færast einungis 10,9 milljarða króna til tekna þó markaðsvirði eignarhluta Samson ehf. hafi aukist um 52,9 milljarða króna á tímabilinu. Félagið færir afleiðusaminga á markaðsvirði og því kemur fram gjaldfærsla að fjárhæð 14,7 milljarða króna sem að stórum hluta er vegna styrkingar íslensku krónunnar á tímabilinu. Sem alþjóðlegt fjárfestingafélag beitir félagið gengisvörnum til að styðja við eign félagsins í Landsbanka Íslands hf. og draga úr gengisáhrifum á eignir félagsins í evrum talið. Þar sem félagið beitir hlutdeildaraðferð á eign sína í bankanum er hækkun á markaðsverði eignarinnar ekki færð að fullu á móti þessutapi.

Bókfært eigið fé í lok tímabilsins nam 24,6 milljarðar króna samkvæmt efnahagsreikningi og lækkaði það um 16,2% frá árslokum 2006. Ef eignarhlutur félagsins í Landsbanka Íslands hf. væri færður til eignar á markaðsverði væri eigið fé félagsins 107 milljarðar króna að teknu tilliti til tekjuskattsáhrifa og eiginfjárhlutfall þá 42%. Í árslok 2006 var eigið fé félagsins skv. sömu aðferð 73 milljarðar króna og hefur því aukist um 47% á tímabilinu.