Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sem nú stendur yfir var deiliskipulag fyrir Ásvallabraut samþykkt. Veginum er ætlað að tengja byggðir á Völlunum og Áslandi.

„Ásvallabrautin er mikil samgöngubót, ekki bara fyrir akandi heldur líka fyrir göngu- og hjólreiðafólk en samhliða brautinni verða lagðir hjólastígar. Nú standa yfir viðræður við Landsnet um færslur á rafmagnslínum sem liggja í jaðri Vallahverfisins, tilfærslan á línunum og Ásvallabrautin opnar nýja möguleika fyrir hverfið og gerir okkur kleift að hefja uppbyggingu á ný í Skarðshlíðinni,“ segir Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingaráðs.

Þrettán ár eru liðin síðan fyrsti íbúinn flutti inn í Vallahverfið. Hverfið hefur byggst hratt upp og nú búa þar um 4900 manns.

Með tilkomu Ásvallabrautar tengjast Vellirnir við Áslandið. Brautin mun liggja frá Lindartorgi sem er síðasta hringtorg á Ásvallabraut á Ásvöllum yfir hrygg milli Ásfjalls og Vatnshlíðar sem eru þekkt kennileiti á svæðinu og tengist Kaldárselsvegi um gatnamót Brekkuáss.

Ásvallabrautin verður boðin út á vormánuðum og er áætlað að verkinu ljúki árið 2017.