Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum í 5,75%. Segir í yfirlýsingu nefndarinnar að vísbendingar séu um hægari bata innlendrar eftirspurnar en spáð var í ágúst. Hins vegar hafi heldur dregið úr áhættu vegna fjármálakreppunnar í Evrópu.

Í yfirlýsingunni segir svo:

„Verðbólga hefur verið nokkru minni en spáð var í ágúst, en á móti kemur að gengi krónunnar er lægra en reiknað var með í spánni og töluverð óvissa er um gengisþróun á næstunni. Verðbólguhorfur hafa því lítið breyst frá síðasta fundi nefndarinnar. Verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði bankans, þótt þær hafi lækkað eitthvað á suma mælikvarða.

Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta í maí og júní og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, en miðað við óbreyttar horfur um verðbólgu og efnahagsbata er líklegt að nafnvextir þurfi að hækka frekar á næstunni.“

Þessi ákvörðun ætti að koma einhverjum á óvart, þar sem bæði greiningardeild Arion banka og greiningardeild Íslandsbanka höfðu spáð 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta. IFS Greining hafði hins vegar spáð óbreyttum stýrivöxtum.