Hjálmar Gíslason - Datamarket
Hjálmar Gíslason - Datamarket
© BIG (VB MYND/BIG)
Seðlabankinn hefur gert samning við DataMarket um kaup á lausn við að setja fram töluleg gögn á aðgengilegu og notendavænu formi. DataMarket sérhæfir sig í aðgengilegri, myndrænni framsetningu tölulegra gagna. Seðlabankinn kaupir aðgengi að kerfi DataMarket og öllum þeim notendamöguleikum sem kerfið býður upp á og verða gögnin birt á vefsíðu Seðlabankans. Þessi samningur á að veita notendum gagna Seðlabankans betri yfirsýn og bæta framsetningu gagna frá Seðlabankanum.