Talsmönnum íslenskra fiskmarkaða finnst óeðlilegt að almennt láti frumvarp um stjórn fiskveiða sig ekkert varða starfsemi íslenskra fiskmarkaða í ljósi umfangs þeirra. Í tilkynningu, sem undirrituð er af framkvæmdastjórum þriggja fiskmarkaða, segir að á árinu 2011 hafi 91 þúsund tonn af bolfiski verið seld í gegnum íslenska fiskmarkaði fyrir rúma 26 milljarða króna. Fiskmarkaðirnir séu 14 fyrirtæki á tæplega 30 stöðum í kringum landið og þar starfi vel á annað hundrað starfsmanna auk þess sem þjónustufyrirtæki við starfsemi þeirra séu mýmörg.

„Með pottum og byggðakvóta, þar sem fiski er vísað fram hjá eðlilegri verðmyndun, er vegið að starfssemi fiskmarkaðanna. Skamkvæmt fjölmörgum úttektum og álitsgerðum um frumvörpin kemur fram að þau muni hafa hvað neikvæðust áhrif á tiltekin útgerðarflokk þ.e. minni og meðalstórar útgerðir sem ekki eiga beina aðild að fiskvinnslu. Þessar útgerðir eru og hafa verið þau fyrirtæki sem hafa lagt til drjúgan hluta þess afla sem seldur er á íslenskum fiskmörkuðum. Undirritaðir gera það að tillögu sinni að allur fiskur sem veiddur er af kvóta úthlutuðum til rannsókna, fræðslu, strandveiða, sjóstangveiðimóta og frístundaveiða fari skilyrðislaust til uppboðs á fiskmarkaði.“

Þá segir í tilkynningunni að mikilvægt sé að átak verði gert í samræmingu á vigtun alls sjávarafla m.a. með því að allur afli verði veginn með sama hætti innanlands.

Undir tilkynninguna skrifa þeir Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands hf., Ragnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suðurnesja hf. og Eyjólfur Þór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Reiknistofu fiskmarkaða hf.