LEX vísar alfarið á bug lýsingum Kára á samskiptum hans við starfsmenn LEX. Eins og fram hefur komið í Viðskiptablaðinu á Kári í deilum fyrir dómstólum bæði við lögmannsstofuna og Karl Axelsson lögmann. Í yfirlýsingu frá LEX segir að lýsingar Kára séu í besta falli hugarburður.
Viðskiptasambandi Kára og LEX hafi lokið í ágústmánuði 2012, en þá hafi um margra mánaða skeið verið reynt, án árangurs, að fá greitt fyrir vinnu sem Kári óskaði eftir frá lögmannsstofunni LEX.
„Vinnan tengdist vörn í umfangsmiklu dómsmáli sem höfðað hafði verið gegn Kára vegna ágreinings hans við byggingaraðila stórhýsis við Elliðavatn.“ Úrskurðarnefnd LMFÍ hafi staðfest að staðið hefði verið eðlilega og faglega í alla staði að vinnu LEX í þágu Kára, sem og reikningsgerð vegna hennar.