Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins hafa sent Alþingi umsagnir um þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína og lagafrumvarps um kerfisáætlun við lagningu raflína.

Í umsögn samtakanna kemur fram að þau telji mikilvægt að sveitarfélögum verði skylt að gera ráð fyrir raflínum í kerfisáætlun í skipulagi sínu. Óeðlilegt sé að sveitarfélög geti haldið endurbótum á flutningskerfi raforku í gíslinu svo árum skipti og komið þannig í veg fyrir eðlilegt orkuöryggi í öðrum landshlutum og tafið nauðsynlega uppbyggingu atvinnustarfsemi.

Einnig kemur fram að samtökin hafi miklar áhyggjur af gríðarlegum kostnaði sem fylgi fyrirhugaðri uppbyggingu flutningskerfis raforku, sérstaklega ef ákvörðun verði tekin um að sífellt stærri hluti þess verði lagður í jörð. Er þar vísað til upplýsinga frá Landsneti og rakin nokkur dæmi um gjaldskrárhækkanir bæði til almennings, almenns reksturs og stórnotenda.

Bent er á að verði heimilað að jarðstrengir megi verða 50% dýrari en loftlínur geti heildarhækkun gjaldskrár á flutningi raforku til almennra fyrirtækja og heimila orðið um 50% og um 36% til stórnotenda. Telja samtökin því nauðsynlegt að meta arðsemi einstakra framkvæmda og áhrif á gjaldskrár auk annarra þátta.