Viðskiptaráð Íslands telur engin haldbær rök fyrir því að heimila undanþágur frá samkeppnislögum þegar kemur að mjólkuriðnaði. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins til atvinnuveganefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Með frumvarpinu er lagt til að undanþágur frá samkeppnislögum er varða samráð, samruna og verðtilfærslu í mjólkuriðnaði falli brott.

Í umsögn Viðskiptaráðs kemur fram að umræddar undanþágur gangi gegn markmiði samkeppnislaga og áhrif þeirra leyni sér ekki. Vísbendingar séu um að skortur á samkeppnisaðhaldi hafi leitt til sóunar innan greinarinnar þar sem framleiðni í mjólkurframleiðslu sé um 20% lægri en á öðrum Norðurlöndum. Afleiðing þess sé hærri framleiðslukostnaður við mjólkuframleiðslu en vera þyrfi og þar með sóun á þjóðhagslegum verðmætum.

Segir Viðskiptaráð að núverandi fyrirkomulag styðji við hagsmuni fámenns hóps á kostnað heildarinnar.

Umsögn Viðskiptaráðs má sjá hér.