Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 8,0%. Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum verða 9,25%. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga verða 9,5% og daglánavextir 11,0%.

Þetta er nokkuð meiri lækkun en greiningaraðilar höfðu spáð en þeir höfðu rætt um 0,25%.