Velta á millibankamarkaði í septembermánuði 2010 nam 2.594 milljónum króna sem er 982 milljóna króna meiri velta en í ágúst mánuði.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Þar af námu gjaldeyriskaup Seðlabankans 1.372 milljónum króna eða eða 52,9% af heildarveltu mánaðarins. Gengi krónunnar veiktist um 1% gagnvart evru í mánuðinum.