Tilmæli frá Seðlabanka Íslands frá því síðastliðinn föstudag um temprun viðskipta eru enn í gildi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Þar er þó áréttað að tilmælin eru leiðbeinandi. Áfram er unnið að því að koma gjaldeyrisviðskiptum í rétt horf í samstarfi Seðlabanka Íslands og annarra fjármálastofnana.

Í tilkynningunni kemur fram að á meðan viðskiptabankarnir þrír eru að hefja starfsemi eftir þær breytingar sem átt hafa sér stað á eignarhaldi þeirra hafa orðið tafir á gjaldeyrisviðskiptum.

Hnökrarnir hafa þó farið minnkandi að sögn Seðlabankans.

Þá kemur fram að Landsbankinn hefur hafið starfsemi undir merkjum nýs eiganda og hann sinnti hluta gjaldeyrisviðskipta í dag. Þegar formbreytingu annarra viðskiptabanka er lokið hefja þeir einnig gjaldeyrisviðskipti.