Blaða- og fréttamenn eru boðaðir til kynningarfundar vegna komu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til Íslands á Kjarvalsstöðum klukkan 13 í dag. Í tilkynningu segir að á fundinum kynna Mark Flanagan, sem er yfirmaður sendinefndarinnar, og Franek Rozwadowski, sendifulltrúi sjóðsins á Íslandi, vinnu sendinefndarinnar og árangur viðræðna.

Að kynningu lokinni munu Flanagan og Rozwadowski svara fyrirspurnum frá blaða- og fréttamönnum.