„Krakkarnir hafa rekið þetta í sameiningu síðan í september. Við vonuðumst til að geta rekið vídeóleiguna í ár. En þetta borgar sig ekki og við viljum ekki taka sénsinn. Draumur okkar nú er að klára að selja lagerinn og loka fyrir jól,“ segir Kristrún Agnarsdóttir.

Benedikt Arnar Oddsson, sonur hennar, keypti rekstur Suðurlandsvídeó við Austurveg á Selfossi í september og hefur hann rekið myndbandaleiguna ásamt móður sinni og systur.

Suðurlandsvídeó á Selfossi var stofnuð fyrir um 30 árum og rak briddsspilarinn Aðalsteinn Jörgensen hana í um 26 ár - eða þar til í september á þessu ári sem hann seldi reksturinn. Aðalsteinn var í liðinu sem vann heimsmeistaratitilinn í bridds þar sem tákn sigursins var Bermúdaskálin fræga sem löngum er vitnað til.

Kristrún segir ástæðuna fyrir því að þau hafi ákveðið að pakka þá að útleiga á á DVD-mynddiskum hafa dregist mikið saman auk þess sem margir viðskiptavinir virðist ekki bera virðingu fyrir því sem þeir leigja. „Sumt fólk ber ekki mikla virðingu fyrir diskunum og skilar þeim rispuðum til baka. Börn fara mjög illa með barnamyndirnar. Svo skilar fólk seint og illa og neitar að borga sekt,“ segir Kristrún og bætir við að þótt flestir viðskiptavinir séu góðir þá séu trassarnir þeir sem geri reksturinn erfiðan.

Hagstofan birti upplýsingar á dögunum sem sýndu fram á 50% samdrátt í útleigu hjá myndbandaleigum síðastliðinn áratug. Miðað við upplýsingarnar hafi hver einstaklingur leigt sér mynd fimm sinnum, eða í meira en helmingi færri skipti en árið 2001.

Þau mæðgin vinna nú að því að selja lagerinn, allar þær DVD-myndir sem til eru á leigunni.

„Við höfum ekki pláss fyrir hann heima,“ segir Kristrún.