Sigríður J. Hjaltested er hæfust umsækjenda til þess að gegna stöðu dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Að henni frátalinni eru þau Sigríður Elsa Kjartansdóttir og Þórður Clausen hæfust.

Þetta er niðurstaða dómnefndar sem skilaði umsögn um umsækjendur um embætti tveggja dómara með fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur og eins dómara með fast sæti við Héraðsdóm Vestfjarða sem auglýst voru laus til umsóknar þann 6. júní síðastliðinn. Umsækjendur um embættin voru átta en tveir drógu umsóknir sínar til baka, Unnsteinn Örn Elvarsson og Hrannar Már S. Hafberg.

Þá telur nefndin að af þeim sem sóttu um embætti dómara við Héraðsdóm Vestfjarða, séu Arnaldur Hjartarson og Sigríður Elsa Kjartansdóttir hæfust til að hljóta skipun í það embætti.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun skipa í stöðuna á grundvelli niðurstöðu dómnefndarinnar.