Arðsemi eigin fjár hjá MP Fjárfestingabanka var ríflega 100% á síðasta ári. Gestur Viðskiptaþáttarins í dag er Sigurður Valtýsson, framkvæmdastjóri MP Fjárfestingabanka, og verður rætt við hann um þann mikla vöxt sem orðið hefur hjá bankanum og hvaða tækifæri felst í því að reka banka við hlið risanna á íslenskum bankamarkaði. Einnig verður rætt við Sigrúnu Guðjónsdóttur, forstjóra Tæknivals, en félagið sendi frá sér uppgjör síðasta árs í dag.

Þá munum við heyra í Þórólfi Sveinssyni foranni Landssambands kúabænda en mikið er að gerast hjá kúabændum þessa daganna. Verð á mjólkurkvóta hefur aldrei verið hærra og þá er verið að sameina afurðarstöðvar í mjólkurframleiðslu.