Arnþór Halldórsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Iceland Express. Hann hefur tekið við störfum sem framkvæmdastjóri IP fjarskipta og er jafnframt einn af eigendum þess fyrirtækis. Sigurður I. Halldórsson formaður stjórnar Iceland Express tekur við sem framkvæmdastjóri félagsins.

Arnþór Halldórsson hóf störf sem ráðgjafi fyrir Iceland Express í ágúst 2003 og tók tímabundið við starfi framkvæmdastjóra í byrjun apríl 2004. Samhliða hefur hann unnið að uppbyggingu IP fjarskipta.