Síminn hefur birt uppgjör sitt fyrir fyrstu sex mánuði ársins, en þar kemur fram að fyrirtækið hagnaðist um 1,3 milljarða króna eftir skatta á tímabilinu. Er það sami hagnaður og á sama tímabili í fyrra.

Sala dróst saman um 4,4% og nam 14,6 milljörðum króna samanborið við 15,3 milljarða á sama tímabili í fyra. Í tilkynningu frá Símanum segir að þar muni mest um tekjur fyrirtækisins í Danmörku sem að hluta til hafi verið inni í tölum fyrra árs en fyrirtækið var selt í fyrra.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam  rétt rúmum 4,0 milljörðum króna. Hann nam rétt tæpum 4,0 milljörðum árið 2014. EBITDA hlutfallið hækkaði í 27,5%. Það var 26,2% á fyrri hluta 2014.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 4,1 milljörðum króna á tímabilinu, samanborið við 4,0 milljarða á fyrstu 6 mánuðum fyrra árs. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3,3 milljörðum króna samanborið við 3,2 milljarða á fyrstu 6 mánuðum 2014.

Skuldir lækkuðu

Heildareignir samstæðunnar námu 61,5 milljörðum króna við lok tímabils. Vaxtaberandi skuldir námu 24,8 milljörðum króna en voru 26,1 milljarður í fyrra. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20,8 milljarðar króna og lækkuðu um tæpar 600 milljónir króna á tímabilinu.

Fjármagnsgjöld voru 597 milljónir króna. Vaxtagjöld voru 788 milljónir króna, fjármunatekjur voru 205 milljónir kr. og  gengishagnaður 110 milljónir króna.

Eiginfjárhlutfall Símans hf. er 50,7% og eigið fé er 31,2 milljarðar króna.

„Við erum sátt við afkomuna á fyrri hluta ársins. Kostnaðurinn lækkar milli ára en tekjurnar dragast lítillega saman.  Það er mikil samkeppni á fjarskiptamarkaðnum og viðskiptavinir fylgjast vel með þeim nýjungum sem í boði eru. Síminn hefur á undanförnum misserum verið í fararbroddi í því að bjóða nýjar og breyttar þjónustuleiðir og þróa vöruframboðið í takt við þarfir viðskiptavina. Þetta hefur skilað sér í því að viðskiptavinum Símans í farsíma og sjónvarpi hefur fjölgað talsvert það sem af er ári. Sameining Símans og Skjásins gefur okkur góð tækifæri til að halda áfram að bjóða neytendum framúrskarandi þjónustu á samkeppnishæfu verði,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans.

Hann segir að vinna við skráningu félagsins í kauphöll gangi vel. „Við gerum ráð fyrir því að Síminn verði skráður á fjórða ársfjórðungi. Það eru því viðburðaríkir tímar framundan.“