Framboðsfrestur til setu í stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands rann út í dag og er sjálfkjörið í stjórn félagsins. Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórninni: Magnús Þorsteinsson, núverandi stjórnarformaður, Gunnar M. Björgvinsson fjárfestir, Eggert Magnússon,  Sindri Sindrason og Þór Kristjánsson.

Aðalfundurinn verður haldinn 27. febrúar næstkomandi.