Framboðsfrestur til setu í stjórn Straums Fjárfestingarbanka hf. rann út í gær og er ljóst að sjálfkjörið er í stjórn félagsins. Aðalmenn verða, Björgólfur Thor Björgólfsson, Eggert Magnússon, Kristinn Björnsson, Magnús Kristinsson og Þór Kristjánsson. Talið er líklegt að Björgólfur Thor taki við stjórnarformennsku af Magnúsi Kristinssyni.

Varamenn eru, Birgir Már Ragnarsson, Finnur Geirsson, Guðjón Auðunsson,
Gunnar Sch. Thorsteinsson og Þórunn Guðmundsdóttir.

Samkvæmt samþykktum félags skal kjósa fimm aðalmenn til setu í stjórn bankans og fimm menn til vara. Samkvæmt þessu er ljóst að sjálfkjörið verður í stjórn Straums Fjárfestingarbanka hf. á hluthafafundi félagsins 15. september nk.