Framboðsfrestur til stjórnar Sjóvár-Almennratrygginga hf. rann út síðasta laugardag. Þar sem aðeins fimm gáfu kost á sér í stjórnina verður sjálfkjörið í hana, en að auki gáfu tveir kost á sér í varastjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar.

Þeir sem gefa kost á sér í stjórn félagsins eru Erna Gísladóttir, Heimir V. Haraldsson, Hjördís E. Harðardóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Tómas Kristjánsson. Í varastjórn bjóða sig fram þau Anna Guðmundsdóttir og Garðar Gíslason.