Framboð á ferðum frá Íslandi til London hefur aukist verulega á síðustu árum. Í vetur er boðið upp á ríflega tvöfalt fleiri ferðir til London en fyrir þremur árum. Fjallað er um málið á vef Túrista.

Í vetur verður flogið allt að fjörutíu og tvisvar sinnum í viku frá Keflavík til flugvallanna Gatwick, Heathrow og Luton.

Af þeim áfangastöðum sem flogið var til í október var London fyrirferðarmest, en flogið var til borgarinnar í 17,5% tilvika. Það þýðir að sjötta hver ferð frá Keflavík er til London. Kaupmannahöfn var í öðru sæti með 10,5% hlutdeild og Osló í því þriðja, en 8,9% flugferða frá Keflavík voru þangað