Hækkun áfengisverðs um 6-11% hækkar vísitölu neysluverðs um u.þ.b. 0,25% og gera má ráð fyrir að sú hækkun skili sér að mestu í verðbólgumælingu nú í júní.

Þetta kemur fram í verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans en deildin gerir ráð fyrir vísitala neysluverðs hækki um 1,2% í júní. Gangi sú spá eftir verður 12 mánaða verðbólga 12% og hækkar milli mánaða eftir að hafa lækkað fjóra mánuði í röð þar á undan.

Hagfræðideildin segir að í mælingunni nú megi búast við þó nokkrum verðhækkunum í tengslum við skattahækkanir á áfengi og eldsneyti. Einnig má búast við hækkun á innflutningsvörum s.s. matvöru, húsgögnum o.fl. Aftur á móti gerir spá hagfræðideildarinnar ráð fyrir hóflegum áhrifum til lækkunar vegna fasteignaliðarins.

Þá má búast við að hækkun á eldsneyti valdi um 0,3-0,4% hækkun á VNV í mánuðinum en um er að ræða hækkun vegna skattabreytinga, gengisáhrifa og hækkunar á heimsmarkaðsverði.

Þá kemur fram að krónan hefur nú veikst um rúmlega 8% frá því að síðasta verðbólgumæling fór fram um miðjan maí.

„Að öllum líkindum er óumflýjanlegt að hluti af þeirri veikingarhrinu skili sér inn í innflutningsverðlag og því eigum við von á þó nokkrum hækkunum á flestum innflutningsliðum,“ segir í Hagsjá, vefriti hagfræðideildarinnar.

„Ljóst er að minnkandi eftirspurn ætti að öllu jöfnu að draga úr svigrúmi til hækkana en spá okkar ráð fyrir minni hækkun en í mánuðinum á undan. En í maí hækkuðu innfluttar vörur að jafnaði um rúmlega 2% milli mánaða, á sama tíma og innlendar vörur nánast stóðu í stað (0,1% hækkun milli mánaða).“

Sjá nánar í Hagsjá.