Skattayfirvöld í Kaliforníu birtu áhugaverðan lista í lok síðustu viku. Þeir 500 aðilar sem skulda mest í fylkinu voru settir á lista. Þar á meðal leynast stjörnur á borð leikarann Steven Seagal og söngkonuna Dionne Warwick.

Steven Seagal skuldar Kaliforníu tæplega 350 þúsund dollara og hefur verið á listanum síðan í apríl. Þá skuldar Warwick um 2,6 milljónir dollara en hún er nú búsett í New Jersey. Útgefandi hennar, Kevin Sasaki, hefur lýst því yfir að hún hefur samið við yfirvöld um endurgreiðslu skuldarinnar.

Sá sem skuldar mest á listanum er Halsey Minor, stofnandi CNET, en hann skuldar um 10,7 milljónir dollara. Samtals eru það um 10 milljarðar dollara sem Kaliforníu ríkið áætlar að vanti upp á frá skattgreiðendum.

Yfirvöld í Kaliforníu tóku upp á því að birta þennan lista árið 2007 en síðan þá hefur þeim náð að endurheimta yfir 175 milljónir dollara.

Hér að neðan má sjá myndbönd frá gullaldartímum þeirra Dionne Warwick og Steven Seagal.