Þrátt fyrir þróun persónuafsláttar, barna- og vaxtabóta hefur sá hópur hjóna sem skipar sér í lægstu tekjutíundina búið við stöðuga aukningu kaupmáttar ráðstöfunartekna og eru þær nú 28% hærri en 1994. Þessu er haldið fram í frétt á Vefriti fjármálaráðuneytisins.

Fjármálaráðuneytið bendir á að árið 1994 greiddi einstaklingur með 160.000 kr meðaltekjuskattstofn á mánuði 18,2% í skatt til ríkisins en í dag greiðir hann 5,6% af tekjuskattstofni. "Ef tekið væri tillit til yfirfærslu grunnskólans hefði greiðsla til ríkisins numið 15,5%. Skattalækkunin nemur því um 10% af tekjum þessa einstaklings," segir í frétt ráðuneytisins en hún kemur í kjölfar mikillar umræðu um skattbyrgði einstaklingaeftir grein dr. Stefáns Ólafssonar prófessors í Morgunblaðinu fyrir skömmu.

"Frá því að núgildandi skattkerfi var tekið upp með staðgreiðslunni 1988 hafa verið gerðar margs konar breytingar á því, en því hefur ekki verið breytt í meginatriðum. Skatthlutföll ríkis og sveitarfélaga hafa breyst," segir í frétt fjárm''alaráðuneytisins. "Útsvarshlutfallið var 6,7% í upphafi en er núna 12,97%. Skatthlutfall tekjuskatts fór hækkandi til ársins 1996 en hefur síðan verið lækkað. Fyrsta lækkunin var vegna yfirfærslu grunnskólans til sveitarfélaganna en það hefur síðan haldið áfram að lækka og aldrei verið lægra en það er nú, 23,75%. Á næsta ári mun það svo lækka enn og verður þá 21,75%. Persónuafslátturinn og breyting hans hefur að hluta til verið látin taka breytingum í samtengingu við breytingu skattahlutfallsins, þannig var persónuafsláttur lækkaður að krónutölu frá 1996 til 1999, en á sama tíma var skatthlutfallið lækkað. Samspil þessara þátta, og þá sérstaklega barna- og vaxtabætur og breyting þeirra leiðir svo til endanlegrar niðurstöðu varðandi skatta sem greiddir eru. Það eru einkum vaxtabæturnar sem gerðar hafa verið breytingar á en báðar hafa mikil áhrif á endanlega niðurstöðu að því er skattbyrðina varðar, sérstaklega hjá þeim sem lægstar tekjur hafa."

"Enda þótt persónuafsláttur nái bæði til útsvars og tekjuskatts til ríkisins þá greiðir ríkissjóður útsvar þeirra sem hafa tekjur neðan skattleysismarka. Ríkið fær því í raun ekki tekjur fyrr en viðkomandi einstaklingur hefur náð því tekjumarki að endanlegt skatthlutfall hans af tekjuskattstofni er orðið hærra en sem nemur útsvarshlutfallinu."

Í lok fréttarinnar bendir fjármálaráðuneytið á að skattkerfið séþannig að eftir því sem tekjur eru hærri þeim mun meiri skattar eru greiddir. "Í uppsveiflu hækka skattar því óhjákvæmilega. Í lægstu tekjuhópunum er skattbyrði mun háðari breytingum á millifærsluliðum (vaxta- og barnabótum) en í hærri tekjuhópunum." Þrátt fyrir fyrir þá þróun persónuafsláttar, barna- og vaxtabóta sem oft er gagnrýnd hefur sá hópur hjóna sem skipar sér í lægstu tekjutíundina búið við stöðuga aukningu kaupmáttar ráðstöfunartekna og eru þær nú 28% hærri en 1994.