Skattsvikamál sérstaks saksóknara á hendur Ingvari Vilhjálmssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Ingvar var ákærður fyrir að hafa vantalið fjármagnstekjur sínar upp á rétt tæpar 500 milljónir króna árið 2008. Ingvar var árið 2011 dæmdur til að greiða Kaupþingsi 2,6 milljarða króna vegna lána til hlutabréfa í Kaupþingi.

Fram kemur í ákæru embættis sérstaks saksóknara að Ingvar hafi gert tólf framvirka gjaldmiðlasamninga við Kaupþing sem voru á gjalddaga á fyrri hluta árs 2008 og hann komið sér undan að greiða af þeim tæplega 50 milljóna krónur í skatt.