Skeljungur býður landsmönnum á KR-völlinn nk. sunnudag kl. 14 en þá spilar KR á móti KA í Landsbankadeild karla. Skeljungur hefur verið helsti samstarfsaðili knattspyrnunnar í KR frá árinu 1992 og hefur stutt dyggilega við bakið á KR á þeim tíma en nú er félagið ískyggilega nálægt því að blandast í fallbaráttuna.

Leikurinn á sunnudag er í 17. og næst síðustu umferð Landsbankadeildar karla. Leikurinn verður 10. deildarleikur KR og KA á KR-velli. KR hefur sigrað í 8 leikjum og gert 1 jafntefli.