Skeljungur og Gallon, dótturfélög Skeljar fjárfestingarfélags, hafa undirritað viljayfirlýsingar við danska sjóðinn CI Energy Transition Fund I um að skoða möguleika fyrirtækjanna tveggja á að kaupa rafeldsneyti af sjóðnum og dreifa því og selja, m.a. til íslenskra notenda.

„Þetta eru fyrstu viljayfirlýsingar sinnar tegundar sem gerðar eru á Íslandi,“ segir í tilkynningu Skeljungs.

CI Energy Transition Fund I er nýr sjóður í eigu Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) og er stærsti sjóður heims sem er tileinkaður fjárfestingum í verkefnum tengdu grænu rafeldsneyti.

„Markmið stjórnvalda um orkuskipti í sjávarútvegi og skipaflutningum nást því aðeins að skipafélög og útgerðir geti skipt út jarðefnaeldsneyti fyrir aðra og umhverfisvænni orkugjafa. CIP, Skeljungur og Gallon hafa trú á því að rafeldsneyti sé leiðin til að hætta losun koltvísýrings í siglingum. Til að það takist þarf innviði, sem sumir hverjir eru til staðar, en aðra þarf að byggja frá grunni.“

CIP stefnir á framleiðslu rafeldsneytis í Orkugarði Austurlands á Reyðarfirði, en orkugarðurinn er samstarfsvettvangur um nýtingu grænna tækifæra á Austurlandi. Markmið hans er að stuðla að aukinni verðmætasköpun og byggja upp þekkingu á orkuskiptum á svæðinu.

Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs:

„Við hjá Skeljungi og Gallon vinnum markvisst í því að þróa vöruframboð félaganna í átt að aukinni sjálfbærni. Allt í kringum okkur eru ríki og fyrirtæki að leita leiða til að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir aðra og umhverfisvænni orkugjafa og það er stefna okkar að vera traustur samstarfsaðili atvinnulífsins í orkuskiptum.

Við teljum að rafeldsneyti eigi eftir að spila stórt hlutverk í því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis sem orkugjafa í samgöngum og öðrum orkufrekum iðnaði og þar með draga verulega úr losun koltvíoxíðs í andrúmsloftið. Ísland er í einstakri aðstöðu til að ná markverðum árangri í orkumálum, en til að það geti raungerst þarf að fara í fjárfestingar, meðal annars í innviðum tengdum geymslu og dreifingu á rafeldsneyti – þessar fjárfestingar þurfa að byggja á reynslu og þekkingu.

Þetta er því mikilvægt og þarft verkefni fyrir atvinnulífið og samfélagið allt. Við erum stolt af því að gerast samstarfsaðilar CIP í þessari vegferð.“