Nýtt skipurit hefur verið tekið í gildi hjá Íslandsstofu en þremur starfsmönnum hefur verið sagt upp í tengslum við breytingarnar, þar af tveimur forstöðumönnum. Þetta kemur fram á vefsíðu Túrista .

Markmiðið með breytingunni er að stytta boðleiðir og efla þjónustu Íslandsstofu við íslenskt atvinnulíf, erlenda fjárfesta og menningarstarfsemi samkvæmt því sem segir tilkynningu á heimasíðu. Þar kemur fram að hið nýja skipulag sé unnið til samræmis við ný lög um Íslandsstofu sem sett voru fyrr á árinu þar sem skerpt var á stöðu hennar, hlutverki og markmiðum.

Eftir breytingu er starfsemi Íslandsstofu skipt í þrjú áherslusvið í stað fjögurra, auk tveggja stoðsviða og innri þjónustu. Meginsviðin þrjú eru: Áfangastaðurinn, Útflutningur og Fjárfestingar. Stoðsviðin tvö eru fjármál og rekstur annars vegar og kynningarmál hins vegar.

“Hlutverk sviðsins Áfangastaðurinn er að kynna Ísland sem ákjósanlegan áfangastað ferðamanna með samræmdu kynningar- og markaðsstarfi í þágu íslenskrar ferðaþjónustu. Náið samstarf er við atvinnugreinina og stjórnvöld um mótun skilaboða, greiningu tækifæra og áherslna í markaðsstarfinu. Þá vinnur sviðið að kynningu á íslenskri menningu og viðburðum henni tengdri. Sviðið stýrir öðrum landkynningarverkefnum eins og við á.

Hlutverk sviðsins Útflutningur er að auka eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu hjá öllum útflutningsgreinum og greiða fyrir markaðssetningu og útflutningi, hvort sem er á vörum eða þjónustu og á sviði skapandi greina. Sviðið vinnur náið með atvinnulífinu og stjórnvöldum við að móta verkefni, kortleggja markaði, greina tækifæri og móta skilaboð út á markaði. Innan sviðsins eru þarfir og möguleikar hverrar útflutningsgreinar skoðaðar sem og mögulegar aðgerðir varðandi erlent markaðsstarf og hvernig Íslandsstofa getur stutt við þær.

Hlutverk sviðsins Fjárfestingar er að laða beinar erlendar fjárfestingar til Íslands með því að kynna Ísland sem samkeppnishæfa staðsetningu, aðstoða erlenda fjárfesta við tengslamyndun og upplýsingaöflun og vinna að gerð greininga á samkeppnishæfni Íslands fyrir atvinnu- og verðmætaskapandi uppbyggingu. Sviðið sér einnig um kynningu á Íslandi sem tökustað fyrir erlend kvikmyndafyrirtæki í gegnum verkefnið Film in Iceland fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis,” segir í frétt Íslandsstofu.