Bæjastjórn Reykjanesbæjar lagði fram bókun í upphafi bæjarstjórnarfundar þar sem skorað er á hluteigandi að skoðaðir verði kostir þess að innanlandsflug verði flutt til Keflavíkur. Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjanesbæjar .

„Nú er hafin vinna við að skoða kosti þess að flytja innanlandsflugið í Hvassahraun sem er aðeins í 20 mín fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli," segir á vefsíðunni. „Það er ljóst að verði af slíkri framkvæmd mun hún kosta tugi milljarða. Það getur varla talist réttlætanlegt þegar hægt væri að koma upp aðstöðu fyrir innanlandsflug fyrir brot af þessum kostnaði.“

Hér er hægt að lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir furðu sinni á því að ekki hafi verið kannaðir kostir þess að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur.
Nú er hafin vinna við að skoða kosti þess að flytja innanlandsflugið í Hvassahraun sem er aðeins í 20 mín fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Það er ljóst að verði af slíkri framkvæmd mun hún kosta tugi milljarða. Það getur varla talist réttlætanlegt þegar hægt væri að koma upp aðstöðu fyrir innanlandsflug fyrir brot af þessum kostnaði.
Svokölluð Rögnunefnd sem fékk það verkefni að skoða aðra kosti fyrir innanlandsflug en í Reykjavík, útilokaði einhverra hluta vegna Keflavíkurflugvöll sem valkost. Ástæður þess liggja ekki fyrir og slíkt getur varla talist eðlilegt þegar um svo mikla fjármuni er að ræða.

Kostir þess að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur eru hins vegar augljósir út frá fjárhagslegum sjónarmiðum. Á það hefur verið bent að dreifa þurfi ferðamönnum um landið vegna átroðnings á ákveðnum stöðum. Með tengingu innanlandsflugs og millilandaflugs verður slíkt mögulegt í auknum mæli.
Á Suðurnesjum er til staðar sjúkrahús sem gæti sinnt ákveðnum hluta sjúkraflugs með litlum breytingum og því ætti öryggisatriðum að vera fullnægt.


Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar því á hlutaðeigandi að skoðaðir verði kostir þess að innanlandsflugið fari til Keflavíkurflugvallar samhliða athugun á öðrum kostum.“